Kanarí er vinsælasti áfangastaður Íslendinga yfir vetrarmánuðina.
Heimsferðir bjóða úrval gistingar á frábærum kjörum.
Enska ströndin og Maspalomas
Á suðurhluta Gran Canaria er að finna vinsælustu staði eyjarinnar, Ensku ströndina og Maspalomas, en þar eru Heimsferðir með sína gististaði. Þar eru frábærar aðstæður fyrir ferðamenn og undanfarin ár hefur átt sér stað bylting í byggingu nýrra og glæsilegra hótela.
Enska ströndin er stærsti strandstaður Kanaríeyja. Það er upplifun að fylgjast með iðandi mannlífinu. Götulistamenn, tónlistarmenn, sölufólk, sólbrúnir ferðamenn og þéttsetin útikaffihúsin. Á daginn er strandlífið í algleymingi en þegar sólin sest niður fyrir hina gylltu sandkletta Maspalomas, þá sýnir það sig að veitinga- og skemmtistaðirnir Ensku strandarinnar eru nánast jafnmargir stjörnunum á hinum Kanaríska nátthimni. Skammt frá Ensku ströndinni, við hina þekktu Maspalomaseyðimörk, er Maspalomas. Þar er einstök upplifun að ganga í gylltum sandbylgjunum og á frábærri ströndinni. Maspalomas rólegri staður en Enska ströndin og allar aðstæður fyrir fjölskyldur eru frábærar, auk þess sem Enska ströndin er örskammt undan. Á Ensku ströndinni og á Maspalomas er nóg að gera í fríinu, fjöldi góðra veitingastaða á hverju horni, skemmtistaðir, áhugaverðar kynnisferðir, góðir golfvellir, frábær íþróttaaðstaða og síðast en ekki síst þá er ótrúlega ódýrt að lifa í mat og drykk. Það er engin furða að þangað fari þúsundir ferðamanna í hverri viku til að njóta þessa og flýja veturinn heima.
Heimsborgarar á Kanarí
Starfsemi Heimsborgaraklúbbsins hefur fest sig í sessi á liðnum árum. Lögð er áhersla á skemmtilegan félagsskap, fjölbreytt félagsstarf og ekki síst heilsurækt sem fyrir mögum er orðinn einn dýrmætasti þátturinn í þessum ferðum.
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Spænska
Tímamismunur: +1 klst. á sumrin
Flugtími: 5 - 6 klst