Heimsferðir bjóða einstakt tækifæri til að ferðast til Helsinki í Finnlandi og kynnast þessari höfuðborg frænda okkar finna og landinu þeirra. Finnland er hluti norðurlanda og að mörgu leyti svipar Helsinki til annarra skandinavískra höfuðborga, bæði nútímaleg og lifandi, en jafnframt er hér merkileg blanda úr austri sem víða gerir vart við sig og rússnesk áhrif áberandi á köflum.
Helsinki býður ótrúlega spennandi upplifanir, fagrar byggingar og mikla sögu enda nær saga borgarinnar mörg hundruð ár aftur í tímann allt til Gústafs Vasa Svíakonungs sem stofnar borgina um 1550. Hér er einstök menning og stórkostleg náttúrufegurð og hreint ógleymanlegt að ferðast um Finnland að sumri til enda óhætt að segja að land frænda okkar finna, Þúsund vatna landið, sé eitt allra fegursta land heims.