Hin leynda Perla - 21. október
Slóvenía „litla fallega og friðsæla landið sólarmegin í Ölpunum" er staður sem hefur slegið rækilega í gegn hjá Heimsferðafarþegum undanfarin ár. Slóvenía er nyrsta og jafnframt þróaðasta land fyrrum Júgóslavíu.
Nú bjóða Heimsferðir beint flug til höfuðborgarinnar Ljubljana sem er ótvírætt ein af leyndu perlum Evrópu sem allt of fáir þekkja. Þar búa um 300.000 manns. Á hæð ofan við bæinn gnæfir Ljubljana kastali og áin Ljubljanica liðast um borgina. Það er einstakt að rölta með ánni og fylgjast með iðandi mannlífinu, en fjöldi stúdenta og ungs fólks setur sérstakan svip á borgina. Miðbærinn er fullur af kaffi- og veitingahúsum og skemmtistöðum. Mikið menningar- og listalíf er í borginni; leikhús, tónleikahús og fjöldi listamanna með vinnustofur og gallerí. Margar verslanir eru í borginni, bæði risastór verslunarmiðstöð, sérverslanir af öllu tagi og skemmtilegur miðbæjarmarkaður. Verðlag í Ljubljana er mjög hagstætt og góður aðbúnaður fyrir ferðamenn.