Montreal
Heimsborg eins og þær gerast bestar!
7. október - 4 nætur
Heimsferðir bjóða nú Íslendingum upp á beint flug til hinnar einstöku borgar Montreal í Kanada. Flogið er í beinu flugi 7. október og dvalið í 4 nætur.

Borgin hefur stundum verið nefnd París Norður-Ameríku, heimsborg eins og þær gerast bestar. Hún er önnur stærsta borg Kanada, skemmtilega blanda af fallegum gömlum byggingum og háhýsum nútímans. Borgin á sér 400 ára sögu og er önnur stærsta frönskumælandi borgin í heimi á eftir París – og hér tala allir ensku ! Ekki er heldur fráleitt að kalla Montreal höfuðborg Evrópu vestanhafs því menningin ber merki um yfirráð Frakka og Breta fyrr á öldum. En um leið er borgin stórborg og dæmigerður fulltrúi slíkra borga vestanhafs með skýjakljúfum, ys og þys og iðandi mannlífi. Í borginni eru menningarviðburðir á heimsmælikvarða, söfn og hátíðir á hverju strái og heimsfrægt næturlíf. Montreal er suðupottur ólíkra menningarheima, heimsborg sem iðar af lífi og fjöri.
Montreal er í héraðinu Quebec, um 270 kílómetra suðvestur af Quebec-borg sem er höfuðborg héraðsins. Montreal er á samnefndri eyju þar sem saman renna árnar Saint Lawrence og Ottawa. Borgin er skírð eftir stærsta fjallinu á eyjunni, Mount Royal – eða Konunglega fjallinu. Þangað upp er gott að fá sér göngutúr frá miðborginni – eða jafnvel fara í lautartúr í framúrskarandi almenningsgarði uppi á toppi fjallsins, Mount Royal Park sem hannaður var 1876. Útsýnið af fjallinu er frábært og sést jafnt yfir miðbæinn með öllum sínum verslunum og veitingahúsum, sem og yfir ána og Monteregian hæðirnar, náttúruperlu í grennd við Montreal.
Miðborgin (Centre Ville / Downtown) er nútímaleg með breiðgötum, litlum og stórum verslunargötum, veitingastöðum, skemmtistöðum, söfnum og litlum

listagalleríum. Gamli bærinn í Montreal státar af einstakri dulúð og rómantík. Í dag einkennist starfsemin af veitingstöðum, kaffihúsum, galleríum og fallegum smáverslunum. Þessi sögulegi hluti borgarinnar hefur varðveist einkar vel, sem og heillandi andrúmsloft liðinna tíma með gömlum fallegum byggingum, kirkjum og þröngum steinilögðum götunum. Það er einstök stemning að ganga um í gamla bænum; njóta mannlífsins, kíkja í verslanir, tylla sér niður á kaffihús eða bregða sér í ferð í hestvagni meðfram höfninni og um götur gamla bæjarins eða fá sér að borða á einhverjum þeirra frábæru veitingastaða sem þar eru. Á kvöldin er líf og fjör í gamla bænum, mikið af veitingastöðum og börum og þar dansar fólk af hjartans list fram eftir nóttu.
Í Montreal ægir öllu saman og þar býr fólk af ólíkum uppruna. Sá sem er frá Montreal getur verið frá Litlu-Ítalíu, gríska hverfinu, gamla bænum, írska hverfinu Griffintown, Litla-Kína eða Litlu-Portúgal en um 67% borgarbúa tala frönsku sem fyrsta tungumál. Ótrúlega mikið er á döfinni í listalífi borgarinnar á hverjum tíma. Söfnin eru líka fjölbreytt, allt frá stóru og miklu skordýrasafni til nútímalistasafnsins og Montreal Museum of Fine Arts (Musée des beaux-arts de Montréal) sem er helsta flaggskip kanadískra safna og sýnir klassíska myndlist, skreytilist og 19. aldar málverk.
Árlega er haldin alþjóðleg djasshátíð – sú stærsta í heimi – og fræg kvikmyndahátíð, auk ljósahátíðarinnar þar sem tækifæri gefst til að gæða sér á gómsætum mat frá öllum heimshornum áður en flugeldasýning brestur á. Af sérkennilegri hátíðum má nefna róðrakeppni á kínverskum drekabátum, trúðahátíð, keltneska menningarhátíð og reggíhátíð.
Lengd flugs milli Íslands og Montreal: 5 klst.
Gjaldmiðill: Kanadískur dollari (CAD)
Tungumál: Franska / Enska
Tímamismunur: -4 klst.