Ítalía – Cinque Terre
2010
29. maí - vikuferð
23. ágúst - vikuferð
Vikulöng gönguferð um ströndina og þorpin í Cinque Terre á Ítalíu, á svæði sem býr yfir óviðjafnanlegri náttúrufegurð, menningu og sögu. Cinque Terre heitir eftir fimm þorpum sem virðast hanga utan í bröttum hlíðunum við ströndina sunnan við Genúa. Þarna mynda fallegar hafnir, fullar af litskrúðugum fiskibátum og þröng strætin mjög sérstaka stemmningu. Á millli þorpanna liggur fjöldi göngustíga, ýmist um þverhníptar klettasnasir eða um iðagrænar og ávalar hæðir þaktar vínviði og ólífuviðarlundum. Gist er á heimilislegu hóteli í einu þorpinu og farið þaðan í dagsgöngur.
Kr. 188.900 á mann í tvíbýli þann 29. maí. 247.600 á mann í einbýli. Netverð á mann þann 29. maí.
Ferðatilhögun: Flug til og frá Malpensa í ferðinni 29. maí en til og frá Bologna þann 23.ágúst • Gist í Monterosso í 7 nætur.
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hóteli í 7 nætur, morgunverður, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið: Bátsferðir, valfrjálsar kynnisferðir, aðgangseyrir að söfnum og annað sem ekki er tilgreint að ofan.
Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 15 manns. Hámarksþátttaka er 22 manns.