Náttúruperla í Austurríki
Íslendingahótelið í St. Michael í Lungau
26. ágúst - 2. september
Fyrstur kemur fyrstur fær - ein vinsælasta ferðin okkar!!
Smábærinn St. Michael í Lungauhéraðinu í Austurríki er mikil náttúruperla. Á sumrin er bærinn himnaríki útivistarmannsins með endalausa möguleika; útreiðartúrar, sundlaugar, tennis, náttúrustígar og í göngufæri er fallegur 18 holu golfvöllur. Fjöllin í kring eru tilvalin fyrir léttar gönguferðir. Dvalið er á íslendingahótelinu Speiereck þar sem gestir njóta vinalegrar þjónustu. Lungau er afar miðsvæðis, t.d. eru um 100 km til Salzburg. Í boði verða stuttar kynnis- og gönguferðir um St. Michael og næsta nágrenni.Heimsferðir býður spennandi vikuferð á vit ævintýra og náttúruperla í Austuríki sem býður þverskurð af landi og þjóð. Flogið verður til og frá München og síðustu nóttina verður dvalið á hóteli í nágrenni München. Eins og áður sagði er gist á hinu heimilislega íslendingahóteli Hótel Speiereck sem rekið er af vinalegri íslenskri fjölskyldu sem svo sannarlega taka vel á móti landanum. Morgunverðahlaðborð og kvöldverður er innifalinn í verði.
Kr. 169.900 á mann í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli kr. 17.000. Netverð á mann með sköttum og hálfu fæði.
Ferðatilhögun: Flug til/ frá Munchen • Gist í Lungau í 6 nætur og ein nótt í nágrenni München.
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hóteli í 7 nætur. Akstur á milli áfangastaða og íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið: Valfrjálsar kynnisferðir, aðgangseyrir að söfnum og annað sem ekki er tilgreint að ofan.
Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns, einnig í kynnisferðum.