Bodrum
- Tyrkland eins og það gerist best!
Bodrum bíður þín með einstakan menningararf, stórbrotna náttúrufegurð, töfra Eyjahafsins, frábæran mat og ótrúlega hagstætt verðlag!
Heimsferðir bjóða Íslendingum í sumar ferðir til Bodrum í Tyrklandi, einn eftirsóttasta áfangastað Tyrklands, sem sló svo sannarlega í gegn í fyrra. Bodrum er ótrúlega fallegur hafnarbær sem stendur á samnefndum skaga á Eyjahafsströnd Tyrklands. Bærinn skartar fallegum hvítum húsum sem eru víða skrýdd blómum og þröngum heillandi götum sem bera fortíðinni vitni. Í bænum er endalaust úrval veitingastaða, bara kaffihúsa, verslana og mikið nætur- og skemmtanalíf í boði. Bodrum er ekki síst upp á sitt besta á kvöldinis og margir telja þessa fallegu tyrknesku borg koma þétt á hæla sjálfrar Istanbul hvað varðar fjölbreytileka skemmtunar og næturlífs!
Tyrkland er sannarlega stórbrotið land. Hér mætir austrið vestrinu og heimsálfurnar Evrópa og Asía mætast. Hér var eitt elsta menningarstórveldi heimsins og sagan drýpur af hverju strái. Í nágrenni Bodrum eru frægar fornminjar á heimsminjaskrá UNESCO, og Halikarnassos, eins og Bodrum hét til forna, tengist náið sögu landsins og hinna fornra stórvelda.
Tyrkland býður svo fjöldamargt; eina óspilltustu strandlengju í Evrópu, víða eru eru fallegar strendur, víkur og klettar mæta túrkisbláum sjónu. Í Bordum og nágrenni eru víða merkar fornminjar og yfir þessum fallega bæ vakir einstaklega tignarlegur miðaldakastali, kenndur við heilagan Pétur, en kastalinn hýsir í dag merkilegt safn neðansjávarfornminja sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Hjartsláttur austursins er hér alltaf nálægur og fjörið á mörkuðum og í verslun er mikið. Hér prúttar fólk í viðskiptum eins og það mest má og það telst sjálfsagður hlutur - og til þess fallið að auka skemmtigildi viðskiptanna.
Bodrumsvæðið býður einstaklega umgjörð fyrir ævintýralegt sumarfrí fyrir jafnt fjölskyldur sem og einstaklinga. Meðfram suðurströnd Bodrumskagans liggja nokkrir skemmtilegir bæir sem standa hver við sína vík og má þar m.a. nefna Gumbet, Bitez, Ortakent og Turgitreis. Bæirnir eru allir stutt frá Bodrum borginni og gengur strætisvagn (s.k. Dolmus) á milli bæjanna á svæðinu. Strendurnar eru margar og fjölbreyttar og einnig hafa víða verið byggðar bryggjur við strendurnar sem eru vinsælar til sólbaða. Fyrir þá sem njóta sumarleyfisins í bæjunum við Bodrum er auðvelt er að skjótast til og frá borginni með Dolmus strætisvagninum.
Bodrum býður þér tækifæri til að njóta sumarleyfisins við einstakar aðstæður. Hér er verðlag hagstætt, falleg smábátahöfn með iðandi mannlífi, brosandi fólk, fjörugt næturlíf, heillandi markaðir, moskur og magadansmeyjar – svo eitthvað sé tínt til. Tyrkland hefur svo sannarlega fjöldamargt að bjóða öllum sem þangað leggja leið sína í fríinu.
Á svæðinu er Dedeman vatnsrennibrautagarðurinn sem enginn á að láta fram hjá sér fara, enda er heimsókn í garðinn hreint frábær skemmtun
Hjarta Bodum bæjarins slær í nágrenni hinnar skemmtilegu smábátahafnar. Þar sem verslanir, barir, veitingastaðir og næturklúbbar standa í löngum röðum í skugga kastala heilas Pétur. Í þröngum heillandi götunum er mikið mannlíf og á kvöldin og frameftir er mikið fjör í bænum.
Stutt er að fara frá flugvellinum í Bodrum og á gististaði Heimsferða á svæðinu, en flugvöllurinn er innan við 50 km. frá flestum gististaða okkar.
Gumbet
Gumbet er aðeins 5 km. frá Bodrum borginni. Þarna eru fallegar strendur og fjölbreytt úrval af allskyns vatnasporti er í boði. Í Gumbet er urmull af veitingastöðum, börum og kaffihúsum og fjöldi verslana. Frábær staður fyrir alla, jafnt fjölskyldur sem aðra, sem vilja njóta fjörugs mannlífs í fríinu og vera jafnframt í sem mestri nálægð við Bodrum borgina.
Bitez
Bitez liggur aðeins um 2 km frá Gumbet. Bitez er fjölbreyttur og skemmtilegur bær en hér er andrúmsloftið afslappaðra en í Gumbet. Bærinn býður gott úrval veitingastaða og bara auk verslana. Hér er falleg strönd og allt til staðar sem þarf til að virkilega njóta lífsins í sumarleyfinu í frábæru umhverfi.
Turgitreis
Turgitreis er næst stærsti bær á Bodrumskaga og býður úrval veitingastaða, bara og verslana og eina allra bestu ströndina á svæðinu. Fallegur bær sem er einstakur dvalarstaður í fríinu.
Bodrum er frábær umgjörð fyrir ævintýralegt sumarfrí!
Kort - hótelstaðsetningar og fl.