Netklúbbur

Króatía

Króatía

Króatía

30. júní - 7. júlí

Aðeins þessi eina ferð - frábært tækifæri!

Króatía er einn eftirsóttasti áfangastaður ferðamanna í Evrópu, enda er landið stórkostleg náttúruperla sem státar af fegurstu ströndum og tærasta sjó Evrópu, heillandi menningu og glæsilegum gististöðum.

Heimsferðir bjóða nú aftur ferð til hinnar einstöku Króatíu, eins eftirsóttasta áfangastaðar í Evrópu. Í boði er vikulöng dvöl á þessum einstaka áfangastað sem heillar alla þá sem þangað koma. Mannlífið er heillandi blanda, enda ríkir hér menning síðustu árþúsunda, sem Grikkir, Rómverjar, Slavar, Frakkar, Ítalir og Austurríkismenn hafa sett mark sitt á. Strandlengja Adríahafsins er sú fegursta í Evrópu. Vogskornar strendur með eyjum og skerjum þar sem aldagamlir bæir standa út í hafið og mannlífið er engu líkt.

Heimsferðir bjóða gistingu á völdum hótelum í bænum Rovinj, sem er einstaklega fallegur bær sem fjöldamargir farþegar Heimsferða hafa heimsótt á liðnum árum. Einnig bjóðum við gistingu á hinni fallegu St. Andrija-eyju rétt utan Rovinj.

Lengd flugs milli Íslands og Trieste: 4 klst.     
Gjaldmiðill: Kuna (HRK) 
Tungumál: Króatíska
Tímamismunur: +2 klst.




Bókaðu á netinu

Bæklingar



Haust og vetur 2010 - 2011

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur