Netklúbbur

Ævintýri á Tenerife í haust og vetur

21. september - beint flug til og frá AKUREYRI, 16 nátta ferð - Uppselt!!!

7. október - í 9 nætur, kynntu þér tilboðin!

Jólaferð þann 21. desember og vikuleg flug í febrúar og mars.

Heimsferðir bjóða nú upp á glæsileg ævintýri í haust á Kanaríeyjunni vinsælu, Tenerife. Tenerife, sem er stærst Kanaríeyjanna, býður frábærar aðstæður fyrir ferðamanninn; fallegar strendur, glæsilega gististaði, fjölbreytta afþreyingu og stórbrotna náttúru. 

Þann 21. september verður flogið í beinu flugi til Tenerife með flugvél Icelandair.  Þessi frábæra ferð stendur yfir í 16 nætur og er nú þegar uppseld.
Næsta ferð okkar er 9 nátta ferð þann 7. október og sú ferð er við það að seljast upp.

Á suð-vesturströnd Tenerife eru bæirnir tveir, Los Cristianos og Arona þar sem svæðið vinsæla Playa de las Americas er. Á þessum stað er hvað mest veðursæld á Tenerife og hefur það einmitt lagt sitt af mörkum við að gera staðinn svo vinsælan sem raunin er. Hingað sækja einstaklingar, pör og barnafjölskyldur til að njóta notalegs loftslags, Flug til Tenerifestrandlífsins, fjölbreyttrar afþreyingar og verslana að ógleymdum góða matnum sem í boði er. En eyjan býður margt annað en frábært strandlíf. Ef maður verður þreyttur á sólhlífum og strandbekkjum, þá er margt í boði. Náttúra eyjarinnar er falleg og fjölbreytt og mikil afþreying er í boði auk spennandi og skemmtilegra kynnisferða. Á svæðinu eru margir fallegir golfvellir sem eru skemmtileg og freistandi viðfangsefni fyrir kylfinga.

Sólin og ströndin
Margir fara til suður-Tenerife til þess að njóta strandlífsins og þeir verða ekki fyrir vonbrigðum. Hér er hægt að velja milli mikils fjölda frábærra stranda. Strendurnar eru almennt barnvænar, stilltar öldur og sjaldnast mikið dýpi. Á sumrin eru heimamenn áberandi á ströndunum þar sem þeir leita kælingar en á veturna eru ferðamennirnir allsráðandi.

Skemmtilegir bæir
Los Cristianos er syðst á svæðinu. Göturnar liggja þar eins og völundarhús og á köflum getur maður ennþá fundið fyrir stemmningunni frá því þetta var lítill fiskimannabær. Þar eru margar smágötur með fullt af litlum verslunum, veitingastöðum og fleiru sem skemmtilegt er að skoða. Í norðurátt tekur hinn nýrri Playa de las Americas bær við með stór hótel, margar verslanir auk verslunargötu. Hér eru veitingastaðir sem bjóða fjölbreyttan mat; kínverskan, indverskan, að sjálfsögðu spánskan og margt fleira. Einnig eru hér pöbbar og kaffihús. Hér er einnig gott að leita fyrir sér ef maður er á höttunum eftir næturlífi. Hér er fullt af börum, diskótekum og dansstöðum.

Verslun
Það er mikið af verslunum á orlofsstöðunum. Göngugöturnar í Los Cristianos eru fullar af fallegum verslunum og í Parque Santiago 3 og El Duque verslunarmiðstöðvunum er mikill fjöldi verslana, m.a. fataverslanir, húsbúnaðarverslanir, barnafataverslanir, stórmarkaðir með fjölbreytt úrval, auk veitingastaða og bara ásamt fleiru. Einnig eru reglulega markaðir á svæðinu.

Kynnisferðir
Náttúran og landslagið á Tenerife er mjög fjölbreytt. Hiklaust er hægt að mæla með því að þú farir í skoðunarferðir um eyjuna og njótir alls þess sem hún hefur að bjóða umfram fagrar strendur og afslöppun. Fjölbreytt úrval spennandi kynnisferða er í boði með fararstjórum Heimsferða.

Frábært fyrir börnin
Tenerife er góður og öruggur staður til að vera á ferð með börn. Strandgatan í Los Cristianos og Playa de las Americas er breið og því létt að fara þar um með barnakerru. Á mörgum stöðum eru klifurgrindur og trampólín fyrir stærri börnin. Strendurnar eru almennt barnvænar og fjölbreyttir staðir þar sem gaman er að fara með fjölskylduna. 
   
Gjaldmiðill: Evra
Tungumál: Spænska
Tímamismunur: +1 klst. á sumrin
 

Hér getur þú skoðað staðsetningu gististaða okkar o.fl. á korti


Sjá stórt kort


Bókaðu á netinu

Bæklingar



Haust og vetur 2010 - 2011

Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur