Netklúbbur

Sagan
Heimsferðir voru stofnaðar í mars árið 1992 og eru í dag ein stærsta ferðaskrifstofa landsins. Hjá Heimsferðum starfa um 30 starfsmenn, bæði á Íslandi og á áfangastöðum fyrirtækisins erlendis.

Heimsferðir (ásamt íslensku ferðaskrifstofunni Terra Nova) eru hluti af Primera Travel Group sem er meðal stærstu aðila í ferðaskrifstofustarfsemi í Skandinavíu, með starfemi á öllum Norðurlöndunum, en rekur auk þess ferðaskrifstofu í Eistlandi. Jafnframt er flugfélagið Primera Air í eigu Primera Travel Group en flugfélagið annast nær allt leiguflug frá Skandinavíu fyrir fyrirtækin innan samstæðunnar. Nánari upplýsingar um Primera Travel Group má nálgast hér.

Okkar markmið
Heimsferðir leggja áherslu á að bjóða góða gististaði á hverjum áfangastað, á hagstæðustu kjörum sem möguleg eru og góða og trausta þjónustu, í öllum þáttum ferðarinnar, allt frá því ferð er bókuð og þar til henni er lokið. Heimsferðir leggja jafnframt áherslu á að kynna reglulega nýja og spennandi áfangastaði og ferðamöguleika fyrir Íslendinga og auka þar með fjölbreytileika í ferðamöguleikum á Íslandi. Ekkert er betri trygging fyrir ánægjulegu fríi en reynsla Heimsferða af skipulagningu ferða.

Skrifstofan
Skrifstofa Heimsferða er að Skógarhlíð 18 í Reykjavík og þar eru höfuðstöðvar fyrirtækisins. Að auki eru Heimsferðir með starfsemi og skrifstofur á hinum ýmsu áfangastöðum á þeim tímum sem skipulagðar ferðir þangað standa yfir.

Bókaðu á netinu

Bæklingar



Haust og vetur 2010 - 2011


Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur