Netklúbbur


Arcos Gardens - Golfsvæðið

26. - 5. apríl: UPPSELT
5. - 12. apríl: UPPSELT
12. - 19. apríl: UPPSELT
19. - 29. apríl: Örfá sæti laus

Hotel Cortijo Fain – Arcos Gardens Resort *****
Glæsilegt, lítið og ekta spánskt fimm stjörnu sveitahótel við stórkostlegan golfvöll. Hótelið sem og golfsvæðið hafa rækilega slegið í gegn hjá viðskiptavinum okkar. Svæðið er ca. 3 km frá hinum sögufræga bæ Arcos en bærinn situr eftst í þverhníptu klettabelti og þaðan er tignarlegt útsýni til allra átta.
Einnig bjóðum við upp á gistingu í glæsilegum nýjum raðhúsum, Fairways Gardens, sem  eru á golfsvæðinu. Húsin eru 128 fermetrar með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sjón er sögu ríkari!  Nánari upplýsingar veitir Hörður H. Arnarson (s. 618 4300).
Ath. aðeins er um sérpantanir að ræða, fyrir einstaklinga og hópa.

Arcos Gardens golfsvæðið:
Stórkostlegur golfvöllur sem hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.  Fallegt umhverfi í ólífugarði með stórkostlegt útsýni yfir hið fornfræga þorp Arcos. Völlurinn var hannaður árið 2005 og er nú þegar orðinn einn helsti keppnisvöllur á Spáni. Flatirnar eru mjög krefjandi, stórar og með miklu landslagi sem gera brautirnar allar mun fjölbreyttari. 

Kíktu nánar!
http://www.arcosgardens.com/site/index.html


Bókaðu á netinu

Fyrir bókanir á Arcos Gardens, svítur eða annað, vinsamlegast hringið í Hörð í síma 618-4300 eða sendið vefpóst á sport@heimsferdir.is

Veðrið



Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur