Netklúbbur


Golfskólinn þinn - nýjungar í golfnámskeiðum

Golfskólinn þinnGolfskólinn þinn hefur verið leiðandi í golfkennslu Íslendinga erlendis frá árinu 1997. Kennarateymið er skipað Herði H. Arnarsyni (IPGA - SPGA), Magnúsi Birgissyni (IPGA) - SPGA) og Ragnhildi Sigurðardóttur (IPGA).  Yfir 2200 nemendur hafa lært golf í golfskólum á þeirra vegum í Portúgal og á Spáni. Þau hafa fengið reynda gestakennara sér til aðstoðar og hefur Karl Ómar Karlsson (IPGA - SPGA) golfkennari Leynismanna á Akranesi kennt við skólann undanfarin misseri. Skólinn hefur síðan vorið 2006 verðið staðsettur á Costa Ballena. Aðstæður á Costa Ballena fyrir golfkennslu eru hreint út sagt frábærar sem eykur gæði kennslunar. Gæði, reynsla og frábærar aðstæður gera það að verkum að þú verður ekki svikinn að því að setjast á skólabekk syðst í Andalúsíu og nema golfíþróttina í heila viku.
Vorið 2010 verða eftirfarandi námskeið í boði.

Golfnámskeið vorið 2010 verða eftirfarandi: 

  1. Golfskólinn þinnGunnnámskeið. Markhópur: Forgjöf 28+ og allir þeir sem hafa áhuga á að verða kylfingar.
    6 daga námskeið. Staðsetning: Costa Ballena. Verð kr. 30.000.

  2. Framhaldsnámskeið. Markhópur: Forgjöf 20+ og aðrir sem áhuga hafa á að bæta og þroska golfkunnáttu sína.
    6 daga námskeið. Staðsetning: Costa Ballena. Verð kr. 30.000.

  3. Þriggja kylfu námskeið. "Dræver", fleygjárn og pútter. Markhópur: Forgjöf 20 og undir.
    3 daga kennsla + 2 daga golfmót. Staðsetning: Costa Ballena.
    Verð kr. 16.000 (ekki bókanlegt á netinu - upplýsingar veitir Hörður í síma 618 4300.

Bókaðu á netinu

Fyrir bókanir á Arcos Gardens, svítur eða annað, vinsamlegast hringið í Hörð í síma 618-4300 eða sendið vefpóst á sport@heimsferdir.is

Veðrið



Heimsferðir ehf.| sala@heimsferdir.is | Skógarhlíð 18 | 105 Reykjavík | sími: 5951000 | fax: 5951001 | english
Með fyrirvara um prentvillur