
28. - 5. okt. - 7 nætur - 7 golfdagar
15. - 22. okt. - 7 nætur - 7 golfdagar
22. - 31. okt. - 9 nætur - 9 golfdagar
Innifalið í öllum ferðum: Flug, flugvallaskattar, flutningur á golfsetti, rútur til og frá flugvelli, gisting með hálfu fæði, ótakmarkað golf, golfkerrur og æfingaboltar.
Novo Sancti Petri golfsvæðið er í Andalúsíu á Spáni við strönd Atlantshafsins. Á ströndinni eru glæsilegir golfvellir við hæfi allra kylfinga, æfingasvæði og nýuppgert fjögurra stjörnu hótel með líkamsrækt. Novo Sancti Petri er draumur hvers kylfings því það samanstendur af snilldarlega hönnuðu golfsvæði með 54 holu keppnisvelli, stuttum æfingaholum og fullkomnu æfingasvæði, hóteli, líkamsrækt og strönd, allt á sama stað. Fyrir þá sem vilja prófa aðra golfvelli eru meira en 14 glæsilegir golfvellir í næsta nágrenni. Þeir sem vilja skoða meira en golfvelli hafa úr nægu að velja því aðeins er 30 mínútna akstur til borgarinnar Jerez og 15 mín. til hinnar sögufrægu borgar Cadiz og fleiri bæja þar sem frábært er að njóta mannlífsins og menningarinnar.
Golfvöllurinn:
Novo Sancti Petri golfsvæðið býður upp á mikla fjölbreytni. Um er að ræða 54 holu golfvöll sem skiptist í strandbrautir, hefðbundnar skógarbrautir, vatnabrautir og brautir sem bjóða upp á fallegt útsýni yfir Atlantshafið. 36 af 54 brautum eru hannaðar af snillingnum Severiano Ballesteros og er Novo Sancti Petri fyrsti völlurinn sem hann hannaði, síðan þá hefur hann hannað marga fræga velli.
Æfingasvæðið er mjög gott og er þar mikið pláss sem býður upp á bæði gras og mottur. Á æfingasvæðinu eru minni svæði fyrir löng og stutt vipp, sandgryfjuhögg og einnig eru þar góð púttsvæði. Stuttar æfingabrautir eru einnig á svæðinu. Klúbbhúsið er rúmgott og vinalegt og öll önnur aðstaða er til fyrirmyndar.
Kíktu nánar á Novo Sancti Petri golfsvæðið hér!
http://www.golf-novosancti.es/eng/frameng.html
Hér eru skemmtilegar myndir frá ferðum okkar til Novo Sancti Petri á síðustu árum (frá Baldri fararstjóra) !!
Hotel Iberostar Royal Andalus ****
Hótelið er við ströndina, nýlega uppgert 4 stjörnu hótel. Á hótelinu eru 413 herbergi á 3 hæðum. Fjölbreytt aðstaða og þjónusta er á hótelinu, s.s. stórar setustofur, hársnyrting, fundarherbergi, líkamsrækt, snarl-bar, kaffitería og veitingastaðir.
Á 60.000 fm. svæði eru tvær stórar sundlaugar, barnalaugar, aðstaða til slökunar og sólbaða. Við hótelið er glæsileg baðströnd og á hótelinu er hægt að leigja strandsólbekki.
Einnig er þarna fjölbreytt tómstunda- og íþróttaaðstaða í boði, bæði á hótelinu og í nágrenninu.
Sjá nánar á: http://www.iberostar.com/EN/Cadiz-hotels/Iberostar-Royal-Andalus_3_18.html
Fyrir bókanir á Arcos Gardens, svítur eða annað, vinsamlegast hringið í Hörð í síma 618-4300 eða sendið vefpóst á sport@heimsferdir.is