Fjölskylduferð til Madonna - Uppáhalds frí Birgittu Haukdal - Heimsferðir
Fjölskylduferð til Madonna - Uppáhalds frí Birgittu Haukdal
11. febrúar í 7 nætur

Það verður sannkallað fjölskyldufjör í brekkunum í Madonna di campligio í febrúar. Staðurinn er einn af uppáhalds skíðastöðum Birgittu Haukdal en hún mun skíða þar með fjölskyldu sinni dagana 11-18 febrúar. Boðið er upp á glæsilegt 4* hótel með stórfenglegu útsýni, ljúffengum mat og yndislegri heilsulind. Birgitta elskar að skíða með fjölskyldu sinni í vetrarfríinu og Madonna di Campiglio er einn af uppáhaldstöðum hennar. Hvað ætlar þú að gera með fjölskyldunni í vetrarfríinu? Síðustu sætin í hið skemmtilega skíðafjör fjölskyldunnar eru komin í sölu hér.

Gist verður á glæsilegum 4* hótelum sem eru vel staðsett hótel í skíðabænum Madonna di Campiglio. Stutt er í skíðalyftur og er um 800 m gangur í miðbæinn. 

Alpen Hotel Vidi er staðsett við Canalone Miramonti brekkuna þannig að hægt er að skíða alveg niður að hótelinu í lok dags. Á hótelinu er veitingastaður, bar, bókasafn, heilsulind, barnasundlaug með rennibrautum og skíðageymsla. Á hótelinu er innifalið hálft fæði, þ.e.a.s. morgunverður og kvöldverður.

Superior herbergin eru rúmgóð og innréttuð í léttum nútímalegum stíl, þau eru með svölum, síma, sjónvarpi, minibar, öryggishólfi og hárþurrku á baðherbergi. Að hámarki geta fimm dvalið saman í herbergi.   

Majestic Hotel er við göngugötuna í Madonna di Campiglio og 50 m frá skíðalyftunni 5 Laghi Express. Á hótelinu er góður veitingastaður, á neðstu hæð hótelsins eru bar og kaffihús, á efstu hæð hótelsins er heilsulindin Sky Wellness og einnig er skíðageymsla með hituðum skápum á hótelin. Á hótelinu er innifalið hálft fæði þ.e.a.s. morgunverður og kvöldverður. 

Superior herbergin eru rúmgóð og hlýleg, ýmist í nútímalegum stíl eða Alpastíl. 
Junior svíturnar eru stærri en superior herbergin og með seturými.
Á öllum herbergjum eru sími, sjónvarp, minibar, öryggishólf og hárþurrka á baðherbergi.

Nálægar skíðalyftur:
- Pradalago Express - 100 m
- Miramonti - 100 m
- 5 Laghi Express - 300 m
- Spinale Express - 600 m
- Fortini express - 850 m
- Grostè 1 Express - 950 m

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

11. til 18. febrúar 2023

Alpen Hotel Vidi fyrir 2 + 2 börn

Verð frá 307.350

m.v. 2 fullorðna og 2 börn

11. til 18. febrúar 2023

Alpen Hotel Vidi fyrir 2 + 1 barn

Verð frá 316.067

m.v. 2 fullorðna og 1 barn

11. til 18. febrúar 2023

Alpen Hotel Vidi fyrir 2

Verð frá

m.v. 2 fullorðna

11. til 18. febrúar 2023

Mejestic Hotel fyrir 2

Verð frá 297.200

m.v. 2 fullorðna