AC Marriott
Hótellýsing

Fallegt hótel sem er í vinsælu Marriott keðjunni. Hótelið býður upp á góða þjónustu og er staðsett í 10 mínútna göngufæri við miðbæ Split og helstu kennileiti borgarinnar. 

Á hótelinu eru 214 vel búin herbergi, öll með loftkælingu, öryggishólfi, te- og kaffiaðstaða, og á baðherbergi er sturta, hárþurrka, sloppar og inniskór. 

Hér má finna bar og veitingastað, heilsulind með sundlaug og heitum potti og líkamsræktaraðstöðu staðsetta á 17.hæð hótelsins með góðu útsýni. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.