Active Hotel Diana
Hótellýsing

Active Hotel Diana er staðsett í fjallaþorpinu Siusi allo Sciliar við rætur Alpe di Siusi. Hótelið er staðsett í 500 m fjarlægð frá skíðakláfinum í Alpe di Siusi/Seiser Alm. 

Á hótelinu er veitingastaður, bar, innisundlaug, sauna, gufubað, útiheitapottur og útisauna. Gestir hafa aðgang að þvottaaðstöðu með þvottavél og þurrkara. Leikherbergi fyrir börn með borðtennisborði, fótboltaborði, Nintendo Wii og Playstation 3. Hægt er að bóka nudd og fleiri snyrtimeðferðir gegn gjaldi. 

Herbergin eru rúmgóð og þægileg með teppalögðum gólfum og viðarhúsgögnum. Á öllum Comfort herbergjum eru svalir, sími, sjónvarp, mini-bar, öryggishólf  og hárþurrka á baðherbergi. Baðsloppar og inniskór fylgja öllum herbergjum. 

Nálægar skíðalyftur: 
- Seis-Seiser Alm-skíðalyftan 650 m

Hægt er að kaupa skíðapassa í gestamóttöku hótelsins. 

Á morgnana er í boði skutlþjónusta á vegum hótelsins að skíðakláfnum k. 08:00, 08:30 og á 15 mínútna fresti milli 09:00-11:30. Til þess að komast til baka á hótelið þarf að taka almenningsskíðarútu - upplýsingar um tíma skíðarútunnar er hægt að fá í gestamóttökunni. 

Afsláttur af skíðaleigu á netinu gegn afsláttarkóða sem gestir fá uppgefinn í gestamóttökunni. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.