Adam Park Marrakech Hotel & Spa
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel, staðsett í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá El Fna-torginu í miðbæ Marrakech. 

Á hótelinu má finna snyrtileg herbergi í blöndu af marrókóskum og nútímalegum stíl. Öll herbergin eru með loftkælingu, sjónvarpi, litlum ísskáp, öryggishólfi, síma og svölum. Á baðherbergi er baðkar, snyrtivörur og hárþurrka.

Hér má finna hlaðborðsveitingastað, ítalskan veitingastað, marrókóskan veitingastað, bar, snarl-bar, heilsulind sem býður upp á ýmsar þjónustur gegn auka gjaldi, líkamsræktaraðstöðu, gjafavöruverslun og hárgreiðslustofu. Hótelið býður einnig upp á þvottaþjónustu og herbergisþjónustu ( bæði gegn gjaldi). Móttakan er opin allan sólarhringinn. 

Í garðinum er sundlaug, sólbekkir og sólhlífar. Á hótelinu má einnig finna barnaklúbb fyrir 3-12 ára.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.