Airis Boutique & Suites
Hótellýsing

Hótel Airis Boutique & Suites er mjög gott hótel sem er eingöngu fyrir 16 ára og eldri. Hótelið er staðsett á hinu fallega svæði Agioi Apostoloi en þar er að finna sandstrendur og skógi vaxið útivistarsvæði sem er vinsælt fyrir göngur og hlaup. Einnig er hægt að stunda þar jóga eða tai chi eða nota æfingatækin sem þar eru.

Hótelið er með falleg og stílhrein herbergi sem eru með svölum eða verönd og vel búin öllum helstu þægindum. Herbergin eru smekklega innréttuð í léttum og ljósum stíl og eru öll með sjónvarpi, kæliskáp, kaffivél, loftkælingu og öryggishólfi.

Hótelgarðurinn er lítill en mjög huggulegur með tveimur sundlaugum, frábærri sólbaðsaðstöðu og sundlaugarbar sem býður upp á drykki og léttar veitingar. Á hótelinu er einnig að finna mjög góðan veitingastað sem sérhæfir sig í krítverskri og miðjarðarhafs matargerð. Hér er einnig að finna litla en vel útbúna líkamsræktarstöð og aðstöðu þar sem boðið er upp á nudd.

Þetta hótel er tilvalið fyrir pör eða vinahópa sem vilja njóta frísins á fallegu svæði en þar sem er jafnframt stutt að fara í gamla og fallega bæinn í Chania sem er í um 4 km fjarlægð frá hótelinu.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.