Albakech Boutique Hotel & Spa
Hótellýsing

Hér er um að ræða vel staðsett hótel í hjarta Marrakech. Í stuttu göngufæri við hótelið má finna veitingastaði og í 10 mínútna akstursfjarlægð er að vinna souk markaðinn og Agdal gardens. 

Á hótelinu eru fallega innréttuð herbergi í marrokóskum stíl. Öll eru búin helstu þægindum eins og öryggishólfi, síma, mini-bar, sjónvarpi, loftkælingu og á baðherbergi eru snyrtivörur og hárþurrka. Öll herbergin eru með svölum eða verönd. Hér er hægt að bóka Junior svítu en þær eru örlítið stærri en tvíbýlin og eru rúmin lengri þar. Hægt er að panta herbergisþjónustu (e. room service) gegn auka gjaldi. 

Hér er lítill sundlaugargarður sem er vel gróinn með einni sundlaug, sólhlífum og sólbekkjum. 

Á hótelinu er móttakan opin allan sólarhringinn og þá er hér einnig að finna hárgreiðslustofu, þvottaþjónustu og  heilsulind.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.