Allegro Barcelo Agadir
Hótellýsing

Allegro Barcelo Agadir er ágætt hótel, vel staðsett við strönd

Það er staðsett nálægt miðkjarna Agadir og alveg við hina 12 km sandströnd sem Agadir er þekkt fyrir. Fjöldi veitinga- og kaffihúsa er í nágrenni við hótelið.  

Herbergin eru einföld en stílhrein og ágætlega rúmgóð. Öll herbergin eru með svölum eða verönd, loftkælingu, litlum ísskáp, sjónvarpi og öryggishólfi. 

Á hótelinu er einn veitingastaður og tveir snakkbarir, annar þeirra við laugina. Gestir hafa því aðgang að mat og drykk bæði við sundlaugina og inni á hótelinu. Hér er góður garður með stórri sundlaug. Hér er einnig starfandi barnaklúbbur fyrir börn á aldrinum 4-12 ára.

Öll almenn aðstaða á hótelinu er til fyrirmyndar, þar er boðið upp á leikfimitíma við laugina ásamt fjölda annarra afþreyingar.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Vel staðsett við ströndina og stutt í alla þjónustu