Almoggar Garden Beach
Hótellýsing

Hér er um að ræða vel staðsett hótel í Agadir, alveg við aðal göngugötuna við ströndina, en með fram henni eru fjöldi veitingastaða. 

Hótelið er lágreist og nær yfir stórt svæði. Það er einfalt og innréttað í hefðbundnum marrakóskum stíl. Móttakan er opin allan sólarhringinn og í henni er hraðbanki. 

Herbergin hér eru rúmgóð með svölum. Öll eru búin loftkælingu, öryggishólfi, mini-bar, sjónvarpi og myrkvunargardínum. Á baðherbergi er stækkunarspegill, hárþurrka og ýmist sturta eða baðkar. Herbergin snúa öll út í garðinn eða með útsýni yfir hafið.  

Á hótelinu er stór sundlaugargarður með tveimur sundlaugum og sólbekkjum og tennisvöllur. Hér er einnig bókasafn, hárgreiðslustofa og lítil verslun, heilsulind og líkamsræktaraðstaða. Á bar hótelsins er að finna skemmtileg karaoki kvöld og hægt er að kaupa sér drykki. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu gegn gjaldi, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.