Aloe Boutique & Suites
Hótellýsing

Aloe Boutique & Suites er nýlegt og mjög fallegt hótel sem staðsett er við ströndina á Almyrida svæðinu sem er í um 25 km fjarlægð austan við Chania. Gistingin er aðeins fyrir 16 ára og eldri og eru gæði og góð þjónusta í fyrirrúmi en hótelið var hannað með það í huga að þar gætu gestir notið sín í fallegu og rólegu umhverfi. Þetta hótel er tilvalið fyrir afslöppun og dekur. 

Herbergin eru falleg, björt og rúmgóð og eru öll með svölum eða verönd. Þau eru útbúin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, kaffivél, kæliskáp, sjónvarpi, síma, straujárni og öryggishólfi og baðherbergi með sturtu ásamt baðsloppum og hárþurrku. 

Á hótelinu er að finna góðan veitingastað ásamt snakkbar, bar og sundlaugarbar. Góð sundlaug er á hótelinu en auk þess er hótelið með einkaströnd við sjóinn þar sem hægt er að leigja sólbekki. Góður líkamsræktarsalur er á hótelinu auk saunu og aðstöðu þar sem hægt er að bóka nudd og aðrar meðferðir. 

Almyrida strandbærinn er lítill, huggulegur og rólegur bær sem er einn af vinsælustu strandbæjunum á svæðinu. Þar er að finna fallega sandströnd þar sem hægt er að stunda mismunandi vatnaíþróttir, góða veitingastaði, bari og verslanir. Umhverfið er mjög fallegt og mikið af fallegum bæjum upp til fjalla sem gaman er að skoða eins og t.d. bæinn Vamos eða strandbæi eins og Kalyves en báðir er í um 5 km fjarlægð frá Almyrida. 

Athugið: Ekki er boðið upp á akstur með Heimsferðum á þetta hótel. Athugið einnig að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.