Althea Village Hotel
Hótellýsing
Althea Village er snyrtilegt og gott hótel sem er byggt upp eins og lítið grískt þorp með lágreistum byggingum og fallegum sundlaugargarði. Það býður upp á fjölbreytta þjónustu og afþreyingu og hentar fjölskyldum vel. Hótelið er staðsett í bænum Kato Daratso sem er í um 1 km fjarlægð frá Agioi Apostoloi svæðinu en þar eru fallegar strendur sem mynda litlar víkur og skemmtilegt útivistarsvæði alsett furutrjám og tröllatrjám, upplagt fyrir göngutúra. Einnig er þar leiksvæði fyrir börnin. Á hótelinu eru 155 herbergi og svítur. Fyrir utan standard herbergi eru í boði júníor svítur og fjölskyldusvítur sem taka allt að 5 manns. Öll eru herbergin stílhrein og rúmgóð og með svölum eða verönd sem snúa út í garð. Eins eru þau öll með loftkælingu, sjónvarpi, síma, ísskáp og öryggishólfi (gegn gjaldi). Á baðherbergi er hárþurrka. Huggulegur og notalegur garðurinn er með tveimur sundlaugum og góðri sólbaðsaðstöðu. Á hótelinu er veitingastaður, bar, barnaklúbbur, leikherbergi, tennisvellir og líkamsræktaraðstaða. Yfir daginn er afþreyingadagskrá fyrir alla aldurshópa m.a. sundleikfimi fyrir fullorðna og dagskrá fyrir börn. Hótelið býður einnig upp á skemmtidagskrá tvö kvöld í viku. Þetta er notalegt fjölskylduhótel staðsett í fallegu umhverfi þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Um 500 metrar eru niður á aðalgötuna þar sem hægt er að taka strætisvagna til strandbæjanna Agia Marina og Platanias eða inn í Chania sem er í um 4 km fjarlægð.