AluaSun Costa Park
Hótellýsing

Hér er um að ræða gott hótel staðsett við jaðar byggðar í Torremolinos, fyrir ofan hraðbrautina. Á ströndina eru um 1,5 km og inn í miðbæ Torremolinos er um 1 km. Þetta hótel býður einungis uppá á allt innifalið þjónustu. Á hótelinu er stór og björt móttaka sem opin er allan sólarhringinn, en þar má fá upplýsingar um hótelskutluna sem býður reglulega akstur niður á strönd.

Athugið að hótelið hentar síður þeim sem eiga erfitt með gang

Herbergin eru létt og fallega innréttuð, snyrtileg með svölum eða verönd, loftkælingu, öryggishólfi (gegn gjaldi), og gervihnattasjónvarpi. Á baðherbergjum er baðkar eða sturta auk hárþurrku. Einnig er hægt að bóka:

Fjölskylduherbergi ATH. eru ekki íbúðir, eru með svölum eða verönd og útihúsgögnum. 

Svítur sem eru 40m2 að stærð og rúma allt að fjóra gesti (hámark 3 fullorðna og eitt barn). Í svítunum er aukalega setusvæði ásamt öðru því sem finna má í herbergjunum.

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, snarlbar, bar, skemmtidagskrá, leiksvæði og tennisvöllur. Að auki er barnaklúbbur starfræktur. Hér er fallegur garður með sólbekkjum, sundlaug og barnalaug en helsti kostur þessa hótels er stórskemmtilegur garðurinn sem hannaður er fyrir alla aldurshópa og ekki síst fyrir allra yngstu börnin. Þvottaaðstaða gegn gjaldi stendur gestum hótelsins til boða og hægt er að bóka alls kyns nudd og dekur gegn gjaldi. Líkamsræktaraðstaða er einnig á hótelinu ásamt sauna.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Frábær kostur fyrir fjölskyldufólk!