Anais Collection
Hótellýsing

Þetta hótel er tveggja hæða og samsett af þremur byggingum og var endurnýjað árið 2019.

Fallegur og rólegur gistivalkostur sem er staðsettur rétt um 300 metra frá Chrissi Akti ströndina 

Móttakan er opin allan sólarhringinn 

Á staðnum eru 2 sundlaugar og sólbaðsverönd en þar eru sólbekkir, sólhlífar og sundlaugarbar. Þar má einnig finna líkamsræktaraðstöðu. 

Herbergin eru innréttuð í einföldum og gamaldags stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi, svölum eða verönd og litlum ísskápi. Hægt er að leigja öryggishólf gegn gjaldi ef óskað er eftir því.

Herbergin sem eru í sölu hjá Heimsferðum eru:

Classic Stúdíó 
Family One Bedroom 
One Bedroom Suite - nýuppgert 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Sjarmerandi gististaður!