Einföld gisting 40 metra frá ströndinni!
Rólegur gistivalkostur sem er vel staðsettur í þorpinu Platanias. Hótelið sjálft er vel staðsett steinsnar frá ströndinni og nálægt veitingastöðum og miðbænum.
Móttakan er opin frá 08:00-15:00 og þar er hægt að fá aðstoð og upplýsingar.
Á Anna Maria hótelinu er lítil sundlaug óhituð en með sólbekkjum og sólhlífum.
Herbergin eru einföld en öll með ísskáp, sjónvarpi, svölum eða verönd, öryggishólfi og loftkælingu. Hárþurrka er á baði.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Frábær staðsetning!