Apartamentos Veramar
Hótellýsing

Aparthotel Veramar er huggulegt íbúðahótel sem hefur nýlega verið tekið í gegn. Hótelið er mjög vel staðsett, nálægt miðbænum og ströndinni í Fuengirola. Einnig er stutt í Myramar verslunarmiðstöðina. 

Hér eru í boði stúdíóíbúðir, íbúðir með 1 og 2 svefnherbergjum þar sem svefnsófi er í stofu - allar eru með eldunaraðstöðu, loftkælingu, frítt þráðlaust interneti, sjónvarpi, síma og svölum. Hægt er að leiga öryggishólf gegn gjaldi. Íbúðirnar hafa nýlega verið innréttaðar á mjög stílhreinan og bjartan hátt. 

Á hótelinu er gestamóttaka opin 24 klst, veitingastaður, sundlaug, barnalaug, sólbaðsaðstaða, sundlaugarbar og fleira. Á þaki hótelsins er glæsilegur Skybar og verönd sem hægt er að sitja og njóta útsýnisins til allra átta. Oft er spiluð lifandi tónlist. Unnt er að tengjast þráðlausu interneti (Wi-Fi) á sameiginlegum svæðum hótelsins án aukagjalds fyrir gesti hótelsins. 

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.