Aparthotel Fuengirola Beach
Hótellýsing

Aparthotel Fuengirola Beach er mjög vel staðsett hótel í náttúrulegu umhverfi, einungis um 300 metra frá El Castillo ströndinni. Miðbærinn er í göngufæri þar má fá finna verslanir, veitingastaði og aðra afþreyingu. Almenningssamgöngur má finna í einungis 50 metra fjarlægð frá hótelinu. Að auki liggja hjólastígar vítt og breytt um bæinn.

Hægt er að bóka íbúðir með einu herbergi eða tveimur, sem rúma frá tveimur upp í sex gesti. Þetta eru einfaldar en snyrtilegar íbúðir. Allar eru þær eru búnar helstu þægindum, svo sem loftkælingu, sjónvarpi, síma, öryggishólfi (gegn gjaldi), setusvæði, eldunaraðstöðu með ísskáp, keramik helluborði og örbylgjuofni. Á baðherbergjunum er baðkar og hárþurrka. Auk þess eru svalir eða verönd sem fylgja öllum íbúðum. Skipt er á rúmum þrisvar sinnum í viku og handklæði endurnýjuð á sama tíma. 

Garðurinn á hótelinu er stór en þar má finna tvær sundlaugar, leiksvæði fyrir börn, íþróttasvæði þar sem m.a. er hægt að stunda blak, körfubolta, fótbolta og spila tennis. Að auki er leikherbergi (e. game room) með ýmis konar afþreyingu inn á hótelinu. Hægt er að nýta þvottaaðstöðu gegn gjaldi. 

Þá er hér einnig veitingastaður, tveir barir og líkamsræktaraðstaða. Móttakan er opin allan sólarhringinn. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu í almenningsrýmum, en gegn gjaldi í íbúðum, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Fjölskylduvænt hótel!