Aparthotel Puerto Azul
Hótellýsing

Aparthotel Puerto Azul er einfalt íbúðarhótel nálægt ströndinni Fontanilla í Marbella. 

Allar íbúðirnar eru búnar sjónvarpi, loftkælingu, síma, öryggishólfi (gegn gjaldi), litlu fullbúnu eldhús og á baðherbergi er hárþurrka. 

Stúdíó íbúðirnar rúma að hámarki tvo einstaklinga og íbúðirnar með einu svefnherbergi eru fyrir allt að þrjá einstaklinga. 

Umhverfis hótelið má finna fjöldann allan af veitingastöðum, verslunum og börum og ekki er langt að sækja í göngugötuna með fram strandlengjunni. 

Á hótelinu má finna veitingastaðinn Kanaloa en hann er staðsettur á ströndinni og hægt er að panta mat og drykki hér. Þá er hér einnig veitingastaðurinn Restaurant Sirocco Marbella en hann er hlaðborðsveitingastaður með spænskri og ítalskri matargerð. BáðIr veitingastaðirnir eru opnir fyrir alla, hvort sem þeir gista á hótelinu eða ekki. 

Á hótelinu er sundlaug og sólbaðsaðstaða.

Ath! Hótelið er með öllu reyklaust. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.