Apartments La Jabega
Hótellýsing

Apartments La Jabega er einföld íbúðagisting staðsett við ströndina í Fuengirola, 500 metra frá miðbænum. Þar má finna aragrúa veitingastaða og verslana.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn. Greiða þarf sérstakt tryggingargjald 10 evrur sem greiða þarf með peningum, fyrir loftkælingu og fjarstýringu inná herbergjum, sem fæst svo endurgreitt við brottför.

Stúdíó íbúðirnar snúa flestar að sjónum og eru með litlu eldhúsi með ofni, örbylgjuofni, ísskáp, brauðrist og kaffivél. Í öllum íbúðum er loftkæling, sjónvarp, öryggishólf og hárþurrka á baðherbergi.

Veitingastaður hótelsins býður upp á alþjóðlega matseld sem framreidd er á morgnana, í hádeginu og á kvöldin. Hægt er að snæða bæða innandyra og úti á verönd. Snakk bar hótelsins er opin alla daga með lifandi tónlist.

Skemmtidagskrá er á hótelinu þar sem m.a. er boðið er upp á lifandi tónlist, sýningar og skemmtiatriði. Á hótelinu er hægt að panta nudd og leigja hjól gegn gjaldi. 

Á þessu hóteli er ekki garður eða sundlaug. 

Ath. Hótelið er með öllu reyklaust. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.