Aqua Pedra Dos Bicos
Hótellýsing
Aqua Pedra Dos Bicos er gott 4 stjörnu hótel sem eingöngu er í boði fyrir fullorðna. Hótelið er staðsett í 400 m fjarlægð frá Praia dos Bicos ströndinni. Fjöldi veitingahúsa og skemmtistaða er í næsta nágrenni við hótelið. Herbergin eru rúmgóð og innréttuð í nútímalegum stíl. Öll herbergi eru búin helstu þægindum og öll með svölum sem annaðhvort eru með útsýni yfir Albufeira, með hliðarsjávarsýn eða fullu sjávarsýn. Loftkæling, minibar og öryggishólf á öllum herbergjum. Frítt wi-fi á öllum herbergjum. Á hótelinu er góður veitingastaður Serenata Restaurant með fjölbreytt úrval í mat og drykk. Tveir barir eru á hótelinu, annar í gestamóttöku og hinn við sundlaugina. Mjög góð aðstaða til sólbaða við sundlaug hótelsins. Á hótelinu er heilsurækt þar sem fjölbreytt þjónusta er í boði eins og nudd og ýmsar snyrtimeðferðir. Huggulegt hótel sem hentar vel fyrir pör og/eða vinahópa. Notalegt umhverfi og stutt í alla þjónustu. Á flestum gististöðum er hægt að tengjast þráðlausu interneti (Wi-Fi) á sameiginlegum svæðum hótelsins og í herbergjum. Stundum er þessi þjónusta veitt gegn gjaldi. Þá má nefna að þó að hótel bjóði aðgengi að interneti er vert að taka fram að internetsamband getur verið hægt og höktandi á ákveðnum álagstímum. Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar. Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega