Ari Boutique Hotel
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel sem staðsett er í nýja bænum Gueliz í Marrakech. Um 15 mínútna akstursfjarlægð Jemaa el-Fna torginu í miðborg Marrakech og flugvellinum í Marrakech.
10 mínútna ganga er á lestarstöðina.

Á hótelinu er sannkölluð Marokkósk gestrisni, þar sem gestir geta notið góðs matar á veitingastað hótelsins og útisundlaugar.

Herbergin eru falleg og í hefðbundnum marokkóskum en mjög nútímalegum stíl. Þau eru rúmgóð og öll eru búin loftkælingu, síma, katli, sjónvarpi, mini-bar og á baðherbergi er hárþurrka. Öryggishólf er inn á öllum herbergjum. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.