Art'Otel Zagreb
Hótellýsing

Hér er um að ræða nýtískulegt hótel, vel staðsett miðsvæðis í Zagreb. 

Á hótelinu eru 110 herbergi og 5 svítur. Öll herbergin eru um 23fm og eru búin sjónvarpi, kaffivél, síma, loftkæling, litlum ísskáp, öryggishólfi og hitakatli. Á baðherbergi eru snyrtivörur, sloppar, inniskór og sturta. 

Á hótelinu er kaffihús, asískur veitingastaður og bar á þaki hótelsins. 

Hér er einnig líkamsræktarstöð sem gestir hafa aðgang að, lítil heilsulind þar sem hægt er að panta allskyns meðferðir ásamt saunu, gufu og innisundlaug.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.