Atlantica Amalthia er sérlega notalegt og fallega hannað hótel með góðri þjónustu og rólegu andrúmslofti og er aðeins fyrir 18 ára og eldri. Hótelið er staðsett niður við fallega ströndina í Agia Marina og er nýbúið að stækka hótelið og bæta við nýrri byggingu og öðrum hótelgarði hinum megin við götuna en gestirnir geta nýtt sér alla þjónustu á báðum stöðum.
Öll herbergi eru rúmgóð og innréttuð á látlausan en nútímalegan hátt og með svölum eða verönd. Þau eru vel búin með loftkælingu, síma, sjónvarpi, kæliskáp og öryggishólfi (gegn gjaldi) og á baðherbergjum er baðkar eða sturta og hárþurrka.
Í hótelgörðunum er að finna þrjár sundlaugar, tvær í efri garðinum og eina í neðri garðinum en þaðan er hægt að ganga beint niður á ströndina. Við sundlaugarbakkana eru sólbekkir og sólhlífar og hægt er að leigja sólbekki á ströndinni. Í görðunum er einnig að finna sundlaugarbar og snarlbar. Morgunverðarsalurinn býður sérlega gott úrval af mat á hlaðborði sínu. Þá er veitingastaður við ströndina þar sem hægt er að fá fjölbreytta alþjóðlega sem og gríska þjóðlega rétti. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða og lítil heilsulind sem býður upp á mismunandi snyrti- og heilsumeðferðir.
Á þessu hóteli ríkir friðsæl og notaleg stemmning með góða þjónustu og þægindi og er tilvalið til þess að slaka vel á í fallegu umhverfi á rólegu svæði. Ekki langt frá hótelinu eru líka glæsilegir strandklúbbar og svæði þar sem boðið er upp á ýmsar vatnaíþróttir. Miðbæjarkjarni Platanias er í um 2 km fjarlægð og nálægt hótelinu er strætisvagnastöð þar sem hægt er að taka strætisvagna til Chania.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.