Atlantica Kalliston
Hótellýsing

Þetta 4 stjörnu hótel býður upp á allt sem þarf til að eiga gott frí og stjana við sig í rólegheitum og er aðeins fyrir 16 ára og eldri. 

Herbergin eru snyrtileg, öll búin síma, kaffikönnu, öryggishólfi, litlum ísskáp, sjónvarpi, loftkælingu og á baðherbergi má finna hárþurrku. Sum herbergi eru með svölum, önnur verönd og hægt er kaupa mismunandi útsýni eftir tegundum herbergja. 

Í garðinum er að finna 4 sundlaugar, ein af þeim er innilaug. Það eru 7 veitingastaðir á hótelinu og hægt er að fara á hlaðborðsveitingastaðinn Deep Blue í morgun-, hádegis- og kvöldmat. Hægt er að fara á ítalskan veitingastað og sitja úti á verönd hótelsins. Einnig er hér asískur veitingastaður og fínn veitingastaður í vínkjallara. Það er snakkbar, strandbar og kaffistaður oh einnig heilsulind þar sem hægt er að njóta í rólegu umhverfi og panta meðferðir sem næra líkama og sál. 

„Allt innifalið þjónustan inniheldur ótakmarkað áfengi og óáfenga drykki (kranabjór, innlendir drykkir, úrval af alþjóðlegum sterkum drykkjum, gosdrykkir og húsvín) 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.