Atlantica Yakinthos
Hótellýsing

Atlantica Yakinthos er fjölskyldurekið hótel sem er staðsett vestur af Chania, á leið til Agia Marina-Platanias og í aðeins 40 metra fjarlægð frá sandströndunum Glaros og Agii Apostoli.

Nikolidakis fjölskyldan hefur rekið hótelið undanfarin 9 ár og býður upp á þægilegt, hlýlegt andrúmsloft sem aðeins er að finna á svo litlum, fjölskyldureknum hótelum. 

Hótelið samanstendur af 39 herbergjum, fyrir einstaklinga,  tveggja manna, þriggja manna og fjölskylduíbúðum. Öll eru þægileg og fallega búin til að skapa afslappandi andrúmsloft.

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.