Hotel Atrium er glæsilegt hótel vel staðsett í miðbænum í Split
Stórt spilavíti er staðsett við hlið hótelsins þar sem spiluð er lifandi tónlist flest kvöld. Í göngufæri við hótelið er að finna skemmtilegan miðbæ Split.
Á hótelinu eru herbergin hlýlega innréttuð. Öll herbergin eru búin sjónvarpi, mini-bar, öryggishólfi og loftkælingu. Á baðherbergi eru hárþurrka, sloppar og inniskór.
Á hótelinu er góð heilsulind með innisundlaug, sauna og nuddpottum. Þá er einnig líkamræktaraðstaða, hraðbanki, kokteilabar og góður veitingastaður á hótelinu.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Glæsilegt hótel vel staðsett í miðborginni