Baia Grande
Hótellýsing

Baia Grande er hótel með fallegt útsýni yfir Atlantshafið

Hótelið er staðsett í Sesmarias, um 3 km frá miðbæ Albufeira og 750 metra frá ströndinni Coelha. Í nágrenni við hótelið er kjörbúð, nokkrar verslanir og næturklúbbur. Hér er skutla sem getur keyrt farþega að Galé ströndinni, tvisvar sinnum á dag nema um helgar, og inn í Albufeira, en þangað er einnig farið tvisvar á dag, alla daga vikunnar.

Á hótelinu eru 111 herbergi og 10 svítur. Allar gistieiningar eru nýlega uppgerð í fallegum en einföldum stíl. Öll eru búin loftkælingu, sjónvarpi, svölum með stólum og borði. Á baðherbergi er hárþurrka.

Hótelgarðurinn er fallegur, með stórri sundlaug, barnalaug, nuddpotti og bar. Á hótelinu má einnig finna heilsulind, litla verslun, borðtennisborð og risa skákborð og líkamsrækt. Hér er móttakan opin allan sólarhringinn. 

Á hótelinu eru tveir barir, annars vegar rólegur píanóbar þar sem er hægt að fá sér kokteila og hlusta á tónlist og barinn sem stendur við sundlaugina. Þá er af og til boðið upp á grillmat við sundlaugina (yfir hásumarið) og á meðan gestir snæða er spiluð tónlist og sýndir þjóðlagadansar. Þá er Mermaid restaurant, hlaðborðsveitingastaður með morgun- og kvöldverð. Á kvöldin eru þemamáltíðir í anda Portúgals, Mexico, Ítalíu og Miðjarðhafs. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.