Balaia Mar
Hótellýsing

 

Balaia Mar er staðsett á fallegum stað við Maria Luisa ströndina í Albufeira. Hótelið er umkringt víðáttumiklum görðum og það tekur einungis 4 mínútur að ganga niður á strönd. Rólegt og heimilslegt hótel. 

 

Á hótelinu eru 32 herbergi og er hægt að fá herbergi með útsýni yfir garða eða sundlaug. Tvíbýlin eru 18 fm stór með queen size rúmi eða 2 aðskildum rúmum. Þau eru búin gervihnattasjónvarpi, loftkælingu, hraðsuðukatli og fríu þráðlausu neti (WiFi). Sum herbergin eru með verönd og önnur með stórum gluggum með útsýni. Einbýlin eru einnig 18 fm en með einbreiðu rúmi. Baðherbergi eru með hárþurrku. Öll herbergi Balaia Mar hótelsins bjóða upp á herbergisþjónustu. 

 

Hótelgarðurinn er mjög vel hirtur og fallegur með sundlaug og sólbekkjum. Á hótelinu er bæði veitingastaður og bar. 

 

Hagkvæmt hótel með fallegum garði og stutt á ströndina!