Best Semirames
Hótellýsing

Hér er um ræða vel staðsett hótel, á rólegu svæði í bænum Puerto de la Cruz. Hótelið er með fallegt sjávarútsýni og hægt er að velja um allt innifalið þjónustu. Héðan eru um 1,5 kílómetrar í miðbæ Puerto de la Cruz. 

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn og hótelið býður upp á góða þjónustu.

Herbergin eru fallega og smekklega innrituð í nútímalegum stíl. Öll eru búin loftkælingu, síma, sjónvarpi, litlum ísskáp og öryggishólfi. Á baðherbergi má finna baðkar og hárþurrku. Öll herbergi eru með svölum eða verönd með sjávarsýn.

Hér er hægt að bóka Senator herbergi (superior herbergi) en þau eru staðsett á hæðum 11-14 á hótelinu. Herbergin hafa að auki sloppa, inniskó og kaffi- og te aðstöðu. 

Á hótelinu er að finna kaffiteríu, hlaðborðsveitingastað, heilsulind, líkamsræktaraðstöðu, leikherbergi (e. game room), litla verslun, hárgreiðslustofu og þvottahús (gegn auka gjaldi). Þá eru hér einnig tveir barir.

Í garðinum er sundlaugarbar, stór sundlaug, barnalaug og nuddpottur. Á hótelinu er einnig barnaklúbbur fyrir krakka 6 ára og eldri.  

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.