Carisa Maleme Hotel
Hótellýsing

Hótel Carisa Maleme er nýtt og stílhreint íbúðarhótel í rólegu umhverfi sem er staðsett á Maleme svæðinu. Það er einungis um 150 m niður á fallega ströndina og nærliggjandi umhverfi er tilvalið til þess að skella sér í gott morgunhlaup eða taka góða göngutúra á langri strandarlengjunni í kyrrðinni eða jafnvel fara í hjólatúr. Hótelið er byggt á þann hátt að útsýni er að finna frá flestum hliðum byggingarinnar þar sem hótelgestir geta notið þess að horfa út á haf og upp í fjöllin. Herbergin eru í nútímalegum stíl með öllum helstu þægindum. Öll herbergin eru með svölum eða verönd, sjónvarpi, loftkælingu, öryggishólfi, kaffivél og kæliskáp. Baðherbergin eru með sturtu eða baðkari og hárþurrku. Í huggulegum garðinum er að finna þrjár sundlaugar, barnalaug, sundlaugarbar, góða sólbaðsaðstöðu og litla líkamsræktarstöð.
Hótelið býður hótelgestum að bóka herbergi með engu fæði, morgunverði eða hálfu fæði. ATHUGIÐ þó að hálft fæði á Carisa Maleme samanstendur af morgunverði og hádegisverði (ekki kvöldverði).
Morgunverður er í boði frá klukkan 08.00 - 10:00 og hádegisverður frá klukkan 13:00 - 15:30.
Þetta er gott hótel fyrir þá sem kjósa næði í fallegu umhverfi þar sem þetta er rólegt svæði og yfirleitt fámennt á fallegri steinvöluströndinni fyrir neðan hótelið. Þess ber að geta að svæðið í kringum hótelið er í uppbyggingu og farþegar talsvert háðir samgöngum til að sækja þjónustu. Það eru um 300 m á næstu strætisvagnastöð þar sem hægt er að taka vagna inn í nærliggjandi bæi en Platanias er í um 4 km fjarlægð og Chania í um 16 km fjarlægð.