Carris Porto Ribeira
Hótellýsing

Carris Porto er staðsett í hjarta gamla bæjarins, Porto Ribeira hverfinu, sem þýðir árbakki og er með góðu útsýni yfir Douro ánna. 

Herbergin eru nýlega uppgerð. Öll herbergin hafa loftkælingu, sjónvarp, mini-bar og öryggishólf (gegn gjaldi) og á baðherbergi er hárþurrka og stækkunarspegill. 

Á hótelinu má finna bar og á veitingastað hótelsins er hlaðborð á morgnanna en á kvöldin er þar „A la carte“ veitingastaður, sem sérhæfir sig í portúgalskri matargerð. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Vel staðsett hótel alveg við Douro ánna