Cerro Mar Atlantico
Hótellýsing

Cerro Mar Atlantico er gott íbúðarhótel staðsett örstutt frá gamla miðbænum í Albufeira. 

Hótelið stendur upp á hæð með stórbrotnu útsýni yfir hafið og næsta nágrenni. Stutt er í alla þjónustu, veitingahús, verslanir og næturlífið í miðbænum. 

Á hótelinu er hægt að bóka stúdíó íbúð eða íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. Íbúðirnar eru fallega innréttaðar og allar eru þær búnar loftkælingu, sjónvarpi, síma, öryggishólfi og eldhúskrók. 

Hér má finna góðan sundlaugargarð með fjórum sundlaugum og þar á meðal er barnalaug. Þá er hér einnig líkamsrækt, tennisvöllur og heilsulind, leikherbergi (e. game room), veitingastaður og bar. 

Hótelið samanstendur af tveimur hótelum: Cerro Mar Garden og Cerro Mar Atlantico en það fyrrnefnda býður eingöngu upp á dvöl í herbergjum. Á Cerro Mar Garden er góður „A la carte“ veitingahús. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu gegn gjaldi, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.