Allt innifalið
Hotel Charmillon Club Resort er gott 4 stjörnu hótel vel staðsett með beinu aðgengi út á strönd. Huggulegur garður með góðri sundlaug og barnalaug. Gestir hótelsins fá handklæði bæði fyrir sundlaug og fyrir ströndina. Bekkir á vegum hótelsins eru á ströndinni. Á hótelinu eru nokkrir veitingastaðir, hlaðborðsveitingastaður, ítalskur, lobby-snarl bar, sundlaugarbar og egypsk-líbanskur veitingastaður. Þá er hádegisverðarstaður við ströndina og einnig bar.
Hótelið gerir mikið úr skemmtidagskrá fyrir gesti sína, bæði yfir daginn og á kvöldin.
Víða er hægt að setjast niður í huggulegum garði til að hafa það náðugt og slappa af. Likamsræktaraðstaða og heilsurækt.
Herbergin eru rúmgóð og hlýlega innréttuð. Öll með sjónvarpi, litlum ísskáp og öryggishólfi. Hárþurrka á baðherbergi. Svalir/verönd á öllum herbergjum og loftkæling.
Gott hótel með frábæru aðgengi að strönd.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu á gestamóttökusvæði gestum að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.