CHC Galini Palace
Hótellýsing

Hér er um að ræða glæsilegt 5* hótel staðsett í Kolymbari en það er í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá Chania. Kolymbari er rólegur staður en þar er að finna allskyns veitingastaði og verslanir. 

 

Á hótelinu eru 128 herbergi, fallega innréttuð í nútímalegum stíl og eru búin öllum helstu þægindum, svo sem loftkælingu, litlum ísskáp, öryggishólfi, sjónvarpi, síma og baðherbergi með hárþurrku. Öll herbergin eru með svölum eða verönd. 

Frítt Wi-Fi (internettenging) er á öllu hótelinu.

Hér er að finna fallegan sundlaugargarð með barnalaug og sundlaugarbar. Þá er hér einnig veitingastaður og bar, leiksvæði fyrir börn, líkamsræktaraðstöðu og heilsulind. 

Hótelið býður upp á allt innifalið þjónustu. „Allt innifalið“ felur í sér morgun- hádegis- og kvöldverð og drykki til kl. 23 á kvöldin. Morgun- og kvöldverður eru bornir fram á hlaðborði á aðalveitingastað hótelsins en hádegisverðurinn er á A la carte veitingastaðnum við sundlaugina.


Athugið að hótelið rukkar eftirfarandi aukagjöld:  Öryggishólf 3 evrur pr dag, Sólbekkur og sólhlíf á strönd 15 evrur á dag fyrir settið og fyrir handklæði til notkunar á strönd eða við sundlaug 20 evrur fyrir dvölina.


Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.