Clube Albufeira Garden Village
Hótellýsing

Clube Albufeira Garden Village er gott íbúðahótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur.  

Alls eru 150 íbúðir á þessu hóteli. Íbúðirnar eru rúmgóðar og ýmist með einu eða tveimur svefnherbergjum og rúma allt að sex manns. Allar eru búnar eldhúsi með eldavél, ofn, örbylgjuofn, kaffivél, brauðrist auk borðbúnaðar. Auk þess eru þær allar með svölum eða verönd, öryggishólfi (gegn gjaldi) og sjónvarpi. 

Superior íbúðirnar eru allar með loftkælingu en standard íbúðirnar eru ekki með loftkælingu og eru á jarðhæð. Þrif eru 2-3x í viku og handklæðaskipti 2x í viku. 

Á hótelinu er góður garður með fjórum sundlaugum, allar með aðstöðu fyrir börn. Þá eru hér tveir veitingastaðir og tveir barir. Hægt er að fá sér drykki og snarl við sundlaugina á daginn. 

Fín afþreying er á hótelinu, m.a. barnaklúbbur, minigolf, billjard og einnig er hjólaleiga á staðnum. Stutt er í næsta golfvöll. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.