Colomba D'Oro
Hótellýsing

Hotel Colomba d‘Oro er fallegt 4 stjörnu hótel staðsett ca 500m frá Marina dell‘Isola ströndinni í Tropea. Um 50 mínútna akstursleið er frá flugvellinum.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn þar sem hægt er að bóka skoðunarferðir og leiga báta og mótorhjól.

Á hótelinu er morgunverðarhlaðborð.

Herbergin eru rúmgóð og hlýlega innréttuð og á öllum herbergjum eru sími, sjónvarp, minibar, öryggishólf, inniskór, loftkæling og hárþurrka á baðherbergi. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.