Coral Compostela Beach Golf
Hótellýsing

Coral Compostela Beach Golf er huggulegt íbúðarhótel sem er staðsett á Playa de las Americas í einungis um 20 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Hótelið er á rólegu svæði við hliðina á golfvelli.  

Íbúðirnar eru snyrtilegar og smekklega innréttaðar í björtum og fallegum litum. Allar íbúðirnar eru búnar svölum eða verönd, sjónvarpi, síma, öryggishólfi (gegn gjaldi) og litlu eldhúsi með ísskáp, brauðrist og kaffivél. Á baðherbergi er hárþurrka og annað hvort er baðkar eða sturta. Í íbúðunum er ekki loftkæling en það eru viftur til staðar. 

Íbúðirnar eru mismunandi – hér að neðan er hægt að sjá hvernig íbúðum er skipt: 

Íbúð m/1 svefnherbergi: Standard íbúðir með öllu því sem nefnt er hér að ofan. Hægt er að bóka íbúð með sundlaugarsýn, en þær íbúðir eru dýrari og þarf alltaf að bóka sérstaklega. 

Íbúð m/1 svefnherbergi og einkaverönd: Þessar íbúðir eru eins og standard íbúðir en eru á jarðhæð og hafa því þann kost að vera með lítinn lokaðan garð með sólbekkjum og eru örlítið stærri. Hægt er að bóka íbúð með sundlaugarsýn, en þær íbúðir eru dýrari og þarf alltaf að bóka sérstaklega.

Íbúð m/1 svefnherbergi SWIMUP: Þessar íbúðir eru eins og standard íbúðir en eru á jarðhæð og hafa því þann kost að vera með lítinn lokaðan garð með sólbekkjum. Íbúðirnar eru aðeins fyrir 16 ára og eldri og þar mega aðeins vera hámark þrír fullorðnir. Fyrir utan íbúðina er rúmgott útisvæði með húsgögnum og einkasundlaug.

Íbúð m/2 svefnherbergjum: Standard íbúðir með öllu því sem nefnt er hér að ofan. Þessi íbúð er með tveimur svefnherbergjum. Þessi íbúð er 80fm.

Íbúð m/2 svefnherbergjum duplex: Þessi íbúð er á tveimur hæðum. Á jarðhæð er stofa með sjónvarpi og svefnsófa, litlu eldhúsi og eitt svefnherbergi. Á efri hæðinni er hitt svefnherbergið, tvö baðherbergi og þar af er eitt með baðkari eða sturtu. Það er stigi á milli hæðanna og hurð. 

Tveggja hæða Dual Grand íbúð m/2 svefnherb.: Þessi íbúð er á tveimur hæðum. Á jarðhæð er stofa með svefnsófa, lítið eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi. Á efri hæðinni er stórt rými með tveimur rúmum, litlum eldhúskrók með örbylgjuofni og baðherbergi með sturtu. Það er stigi á milli hæðanna og hurð. Á efri hæðinni, aðeins í þessari íbúð, er loftkæling. Á báðum hæðum er sjónvarp og ísskápur. Hægt er að bóka íbúð með sundlaugarsýn, en þær íbúðir eru dýrari og þarf alltaf að bóka sérstaklega.

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, bar og lítil matvöruverslun sem selur helstu nauðsynjar. Þá er hér góður garður með sólbaðsaðstöðu, bekkjum og sólhlífum og sundlaugarbar. Það er ein stór sundlaug (upphituð á veturna) og ein barnalaug. Þá er einnig sólbaðsaðstaða á þakverönd hótelsins. 

Á hótelinu er einnig barnaklúbbur (4-12 ára) og leiksvæði fyrir börnin ásamt leikherbergi (e. game room) þar sem er billjardborð og tölvur (gegn gjaldi). Á hótelinu er skemmtidagskrá fyrir allan aldur á háannatíma. Þá er hér einnig góð aðstaða fyrir geymslu á hjólum og hægt er að nýta sér þvottaaðstöðu gegn gjaldi.  

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu gegn gjaldi, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Góður gistivalkostur fyrir fjölskyldur, golfara og hjólreiðakappa