Coral Villas la Quinta
Hótellýsing

Villa fyrir fjölskylduna! 

Hér er um að ræða fallega gistieiningu á norðurhluta eyjunni, nálægt Santa Ursula og Puerto de la Cruz. Villan er staðsett í íbúðarhverfinu í La Quinta, ofan á kletti með fallegu útsýni. 

Húsið er bjart og snyrtilegt, alveg fullbúið og tekur allt að sex manns í gistingu. Sameiginleg aðstaða er góð og einkasundlaug er í garðinum. Húsið er á tveimur hæðum og í því eru þrjú svefnherbergi. Alls eru þrjú baðherbergi í húsinu, þar af eitt inn af svefnherbergi. Í eldhúsi er ísskápur, eldavél, örbylgjuofni og öllu því nauðsynlegasta sem þarf til eldunar. Þá er hér einnig þvottavél, öryggishólf og hægt er að panta barnarúm fyrir ungabörn. Stofan er rúmgóð með sófa og sjónvarpi. 

ATH. Heimsferðir bjóða ekki upp á akstur á þetta hótel.  

Við mælum með bílaleigubíl þegar þessi gisting er bókuð, en bílastæði er beint fyrir utan og gjaldfrjálst. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.