Cortijo del Mar Resort
Hótellýsing

Cortijo del Mar er góð og fallega hönnuð íbúðagisting sem staðsett er á Estepona svæðinu á Costa del Sol. Um 10 mínútna keyrsla er til Puerto Banus. Íbúðirnar eru staðsettar í kringum fallegan garð og sundlaugarsvæði og eru öll sameiginleg svæði til fyrirmyndar. Um 15 mínútna gangur er niður að strönd.

Hægt er að fá aðstoð allan sólarhringinn á þessu hóteli.

Í boði er að bóka tveggja herbergja íbúðir eða þriggja herbergja Duplex íbúðir, en sér sameiginleg sundlaug fylgir Duplex íbúðunum. Íbúðirnar eru notalegar og snyrtilegar og eru allar með loftkælingu, sjónvarpi, síma, útvarpi, straujárni, eldunarstöðu, ísskáp, kaffikönnu, katli og örbylgjuofni. Svalir eða verönd ásamt garðhúsgögnum fylgja öllum íbúðum. Einnig er þvottavél og uppþvottavél í íbúðunum, en kaupa þarf hreinsiefni í hvort tveggja sem fæst á hótelinu sjálfu. Hárþurrku og slopp má finna inni á baðherbergjum, ásamt baðkari og sturtu. Hægt er að fá barnarúm og barnastól í móttökunni gjaldfrjálst, en það er háð framboði. 

Á hótelinu er allt í senn á sama staðnum, veitingastaður og sundlaugarbar, þar sem framreiddur er morgun- og hádegisverður, smáréttir, snarl og kokteilar.

Stór sundlaug er í hótelgarðinum sem er er sameiginleg fyrir alla gesti hótelsins og eru sólbekkir til afnota. Að auki er hægt að leigja handklæði gegn því að greiða 10 evrur í tryggingargjald sem fæst svo endurgreitt.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.

Vinsælt hótel á góðri staðsetningu!